Ráðin fjármálastjóri Samherja

Deila:

Bára Eyfjörð Jónsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Samherja hf., að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Hún hefur starfað hjá Samherja í um tvo áratugi og gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum á sviði fjármála innan samstæðunnar.

Samhliða ráðningunni hafa fjármálasvið og upplýsingatæknisvið Samherja Íslands ehf. verið sameinuð undir stjórn Finnboga Reynissonar sem verður fjármálastjóri félagsins. Þá mun Jón Rafn Ragnarsson einbeita sér að fjármálastjórn Samherja fiskeldis ehf.

„Ég er þakklát forstjóra Samherja fyrir það traust sem mér er sýnt með ráðningu í starf fjármálastjóra og er spennt að taka við nýrri stöðu,“ er haft eftir Báru.

Bára hefur starfað hjá Samherja frá árinu 2006 og hefur verið fjármálastjóri Samherja Íslands ehf. frá ágúst 2025. Baldvin Þorsteinsson forstjóri segir ráðninguna rökrétt skref og að hún hafi verið lykilstarfsmaður hjá félaginu um árabil.

Deila: