Alltaf gaman að mæta í vinnuna

Deila:

„Ég man ekki eftir degi sem mig hefur ekki langað að mæta í vinnuna. Þetta er mjög spennandi starf en á sama tíma ansi krefjandi. Sumir gætu haldið að þetta snúist bara um að fóðra fisk og slátra honum en staðreyndin er sú að fiskeldi er orðið mjög háþróuð atvinnugrein í dag,“ segir Thomas Helmig, eldisstjóri landeldisstöðvar Silfurstjörnunnar í Öxarfirði sem Samherji fiskeldi rekur.

Thomas hefur starfað hjá Silfurstjörnunni í rúmlega tvo áratugi og segir vinnustaðinn afar mikilvægan fyrir svæðið. Hann kom þó til Íslands fyrir tilviljun. „Ég er alinn upp á sveitabæ skammt frá Lübeck í Austur-Þýskalandi og stundaði háskólanám í landmælingaverkfræði, skipulags- og byggðafræðum í Hamborg. Til Íslands kom ég fyrst haustið 2001 sem puttaferðalangur,“ segir hann og rifjar upp hvernig ferðalagið leiddi hann að lokum í sláturtíð hjá Fjallalambi á Kópaskeri. Sú reynsla varð til þess að hann sneri aftur næstu ár og settist síðar að í Öxarfirði.

Hann hóf störf hjá Silfurstjörnunni árið 2004 og hefur síðan unnið sig upp í stöðu eldisstjóra. Samhliða starfi lauk hann námi í sjávarútvegsfræði og síðar fiskeldisfræði og hefur einnig komið að ýmsum þáttum starfseminnar, þar á meðal klakfiskeldi og hrognaframleiðslu.

Miklar breytingar hafa orðið í starfsemi Silfurstjörnunnar á undanförnum árum með aukinni framleiðslugetu og uppbyggingu hátæknivæddrar vinnslu. Stöðin framleiðir í dag lax og nýtir meðal annars jarðhita til að tryggja stöðug og hagstæð vaxtarskilyrði fyrir fiskinn.

Starfsfólk stöðvarinnar er um 45 talsins og kemur frá fjölmörgum löndum. Áhersla er lögð á fjölbreytta þekkingu og reynslu og hefur fyrirtækið einnig haft jákvæð áhrif á samfélagið í Öxarfirði.

Thomas segir sig og fjölskyldu sína lánsama að búa á svæðinu og leggur áherslu á mikilvægi stuðnings Samherja við uppbyggingu starfseminnar í gegnum árin, meðal annars eftir áföll sem hafa dunið á rekstrinum.

Nánar má lesa um viðtalið við Thomas Helmig og starfsemi Silfurstjörnunnar í nýjasta tölublaði Sóknarfæris.

Deila: