Marsralli botnfiska að ljúka

Leiðangri í stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum, svokölluðu marsralli, er að ljúka um þessar mundir, að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar.
Fjögur skip tóku þátt í verkefninu, togararnir Breki og Þórunn Sveinsdóttir og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir. Árni Friðriksson er nú í síðustu togunum úti fyrir Norðurlandi.
Ríflega 100 manns komu að verkefninu, þar af 32 rannsóknamenn og um 70 áhafnarmeðlimir. Þegar rallinu lýkur hefur verið togað á um 580 stöðvum á 20 til 500 metra dýpi allt í kringum landið.
Um er að ræða eitt stærsta verkefni Hafrannsóknastofnunar og gegna gögnin sem safnað er lykilhlutverki í stofnmati og veiðiráðgjöf fyrir flestar íslenskar botnfisktegundir. Þau nýtast einnig í fjölbreyttum vistfræðirannsóknum.
Í leiðangrinum er einnig safnað gögnum um tegundir sem ekki teljast nytjategundir, meðal annars til að greina breytingar í tegundafjölbreytileika í tengslum við breytingar í hitastigi sjávar. Þá var botndýrum sem fengust sem meðafli safnað á nokkrum stöðvum um borð í Árna Friðrikssyni til að fylgjast með lífmassa, fjölbreytileika og útbreiðslu þeirra við landið.
Gert er ráð fyrir að helstu niðurstöður liggi fyrir strax eftir páska og verði þær birtar á nýjum stofnmælingarvef Hafrannsóknastofnunar.
