Páll Jónsson og Sighvatur með misjafna veiði í brælu

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í Grindavík í vikunni, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar þar sem rætt var við skipstjórana um aflabrögð og veðurfar.
Páll Jónsson landaði á mánudag með 109 tonna afla, mest þorsk og ýsu, og var Benedikt Jónsson skipstjóri nokkuð sáttur við túrinn þrátt fyrir erfiðar aðstæður. „Aflinn var 109 tonn, mest þorskur og ýsa. Í reyndinni var þetta góður túr miðað við aðstæður, en það var skítabræla allan tímann. Við byrjuðum á að taka tvær lagnir í Meðallandsbugt, síðan voru tvær teknar fyrir austan Höfða og endað á hálfri lögn í Bugtinni. Veiðin var nokkuð jöfn og hin þokkalegasta,“ segir Benedikt.
Sighvatur landaði hins vegar 52 tonnum í gær og var Óli Björn Björgvinsson skipstjóri síður ánægður með aflann. „Við byrjuðum á að fara norður í Húnaflóa og tókum þar tvær lagnir. Þar reyndist vera of mikill þorskur í aflanum svo við færðum okkur í Faxaflóann. Þar voru einnig teknar tvær lagnir en veiðin var slök og þar vantaði þorsk í aflann sem er heldur óvenjulegt. Í túrnum var leiðindaskítaveður megnið af tímanum. Svona túrar koma inn á milli og menn verða bara að sætta sig við það,“ segir Óli Björn.
Bæði skip héldu til veiða á ný strax að löndun lokinni.

