Vestmannaey og Bergey með góðan afla

Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðar fullfermi í Þorlákshöfn fyrr í vikunni, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar þar sem rætt var við skipstjórana um aflabrögð og veður.
Vestmannaey landaði fullfermi á þriðjudag og var Egill Guðni Guðnason skipstjóri ánægður með aflann en síður með aðstæður á sjó. „Við vorum að veiðum á Pétursey og á Selvogsbanka. Það fiskaðist ágætlega en það var vitlaust veður allan túrinn, mjög hvasst og leiðinlegt. Aflinn var mest þorskur en síðan var þetta blandað; ýsa, ufsi, langa, koli og steinbítur,“ segir Egill Guðni.
Skipið hélt til veiða á ný strax að löndun lokinni og mun landa aftur í Þorlákshöfn í dag.
Bergey landaði fullfermi á mánudag og fór síðan strax aftur til veiða. Jón Valgeirsson skipstjóri segir túrinn hafa gengið vel þrátt fyrir veður. „Við lönduðum fullfermi af blönduðum afla í Þorlákshöfn á mánudaginn. Í aflanum var mest af kola, þorski og ufsa. Haldið var til veiða á ný strax að löndun lokinni og þá var farið á Tána í Grindavíkurdýpinu í þeim tilgangi að reyna við karfa. Karfaveiðin gekk vel og við lönduðum rúmlega 40 tonnum í Þorlákshöfn í gær. Veðrið hefði mátt vera betra en það er ekki hægt að kvarta yfir veiðinni,“ segir Jón.
Bergey landaði þannig bæði fullfermi og síðan góðum karfaafla á skömmum tíma.
Ljósmynd: Egill Guðni Guðnason

