Framleiðslumet hjá Laxá fiskafóðri

Nýtt framleiðslumet var slegið hjá Laxá fiskafóðri á Akureyri á síðasta ári þegar framleidd voru rúm 15.000 tonn af fóðri. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru einkum landeldisfyrirtæki, þar á meðal seiðaeldisstöðvar og áframeldisstöðvar fyrir lax og bleikju.
„Velta okkar var á síðasta ári um fjórir milljarðar króna og reksturinn gengur mjög vel. Aukningin frá árinu 2024 var um 3 þúsund tonn en hámarks afkastageta okkar er um 25 þúsund tonn. Það eru því ekki mörg ár þar til við sjáum fram á fullnýtingu hennar,“ segir Gunnar Örn Kristjánsson framkvæmdastjóri Laxár fiskafóðurs.
Hann segir framundan verulega aukningu í framleiðslu vegna uppbyggingar í landeldi á laxi hér á landi. „Okkar fókus er á að fullnýta verksmiðjuna eins og hún er sem mun kalla á fleiri starfsmenn og þrískiptar vaktir í framleiðslu, þ.e. að framleitt verði allan sólarhringinn alla virka daga ársins. Það höfum við aldrei gert áður,“ segir Gunnar Örn.
Hann bendir jafnframt á að innan fárra ára verði nauðsynlegt að ráðast í byggingu nýrrar fóðurverksmiðju til að anna vaxandi fiskeldi hér á landi og telur allar forsendur vera til staðar fyrir áframhaldandi vexti greinarinnar.
Nánar má lesa um viðtal við Gunnar Örn Kristjánsson og starfsemi Laxá fiskafóðurs í nýjasta tölublaði Sóknarfæris.



