Frávísun í Samskipamáli

Deila:

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómi máli Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum þar sem stefna í málinu var talin fela í sér óhóflegan skriflegan málflutning. Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að kæra úrskurðinn til Landsréttar.

Stefnan í málinu var 135 blaðsíður að lengd, sem er um fimmfalt lengri en þau viðmið sem reglur Dómstólasýslunnar gera ráð fyrir. Dómurinn taldi að umfang hennar bryti gegn meginreglu einkamálaréttarfars um munnlega málsmeðferð og ákvæðum laga um meðferð einkamála. Þá var einnig bent á annmarka á skjalaframlagningu og framsetningu málsins.

Málið snýst um kröfu Samkeppniseftirlitsins um að fá felld úr gildi tvö ákvæði í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá 2025. Með þeim var Samskipum gert að greiða samtals 2,4 milljarða króna í sektir vegna brota á samkeppnislögum, en þær höfðu áður numið rúmum fjórum milljörðum króna samkvæmt ákvörðun eftirlitsins.

Í úrskurði dómsins kemur fram að lengd stefnunnar ein og sér hefði nægt til að vísa málinu frá dómi, en einnig hafi fleiri annmarkar verið til staðar. Þar á meðal var vísað til þess að mikill fjöldi gagna hefði verið lagður fram án fullnægjandi skráningar og tilvísana.

Samkeppniseftirlitið telur hins vegar að umfang málsins réttlæti ítarlega stefnu. Rannsókn málsins hafi verið fordæmalaus að umfangi og náð yfir starfsemi fyrirtækjanna frá 2008 til 2013, auk þess sem niðurstöður eftirlitsins hafi verið rökstuddar á yfir þrjú þúsund blaðsíðum.

Eftirlitið hyggst því kæra frávísunina til Landsréttar og leitast áfram við að fá stjórnvaldssekt Samskipa færða til fyrra horfs.

Deila: