Klassavottun endurnýjuð hjá Slippnum

Klassavottun flotkvíar Slippins Akureyri frá alþjóðlega flokkunarfélaginu Bureau Veritas hefur verið endurnýjuð og staðfestir að kvíin uppfylli áfram strangar kröfur um öryggi, ástand og rekstur.
Vottunin staðfestir að flotkvíin sé í góðu ástandi og tryggi örugga þjónustu fyrir skip sem tekin eru í kví. Hún styrkir jafnframt getu Slippins til að þjónusta fjölbreyttan flota skipa, þar á meðal varðskip, ferjur og rannsóknarskip.
Endurnýjunin eykur einnig möguleika fyrirtækisins á að taka að sér verkefni fyrir erlenda aðila, þar sem vottun frá viðurkenndu flokkunarfélagi er mikilvæg forsenda fyrir trausti skipaeigenda og rekstraraðila þegar kemur að viðhaldi og viðgerðum.
Flotkví Slippins Akureyri er sú eina á Íslandi sem hefur slíka vottun og endurspeglar hún þann gæðastaðal sem fyrirtækið leggur áherslu á í starfsemi sinni.
