Páskastopp hjá Vestmannaeyjaskipum

Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE hafa báðir landað í síðasta sinn fyrir páskahátíðina eftir stutta en ágæta túra þrátt fyrir erfið veðurskilyrði. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Bergey landaði í Þorlákshöfn á sunnudag eftir rúmlega tveggja sólarhringa túr þar sem veiðar stóðu yfir í um einn og hálfan sólarhring. Veitt var á Planinu vestan við Eyjar og fékkst fullfermi, mest af þorski og skarkola. Jón Valgeirsson skipstjóri segir aflabrögðin hafa verið góð en veðrið erfitt. „Það aflaðist ágætlega í túrnum en veðrið var hinsvegar leiðinlegt. Í reyndinni var bræluskítur að mestu en það er að komast þokkalegur vertíðarbragur á veiðina,“ segir Jón. Að löndun lokinni var haldið til Eyja og tekur nú við vikulangt páskastopp.
Vestmannaey landar í heimahöfn í dag eftir sambærilegan túr. Valtýr Bjarnason, sem var skipstjóri í túrnum, segir veiðina hafa gengið þokkalega þrátt fyrir slæmt veður. „Þetta var stuttur túr og aflinn var mest þorskur og koli. Það var skítaveður allan túrinn og reyndar hefur allur mánuðurinn verið býsna krefjandi veðurfarslega,“ segir Valtýr. Hann bætir við að nú taki við kærkomið páskastopp og að menn hafi gott af hléi eftir krefjandi mánuð.

