Ráðgjöf í grásleppu hækkar lítillega

Deila:

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að veiðar á grásleppu á fiskveiðiárinu 2025/2026 verði ekki meiri en 2.932 tonn, sem er um 6% hækkun frá fyrra fiskveiðiári.

Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvísitölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2026, auk gagna frá árinu á undan. Vísitala þessa árs mælist hærri en í fyrra en er þó lág í sögulegu samhengi og vel undir langtímameðaltali. Vísitala síðasta árs var jafnframt sú næst lægsta frá upphafi mælinga árið 1985.

Stofnvísitölur hrognkelsa geta sveiflast nokkuð milli ára sem endurspeglar að hluta óvissu í mælingum. Við útreikning ráðlagðs hámarksafla er því lögð meiri áhersla á nýjustu mælingu, sem vegur 70%, á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs.

Með hliðsjón af þessu leggur Hafrannsóknastofnun til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2026/2027 verði 973 tonn.

Deila: