Hrygningarstopp á morgun

Deila:

Fiskistofa vekur athygli á að hrygningarstopp tekur gildi þann 1. apríl samkvæmt reglugerð um friðun þorsks, skarkola, blálöngu og steinbíts á hrygningartíma.

Á meðan á stoppinu stendur eru veiðar á tilteknum svæðum takmarkaðar samkvæmt ákvæðum reglugerðar með það að markmiði að vernda hrygningu nytjastofna.

Allar frekari upplýsingar um hrygningastoppið má finna í viðkomandi reglugerð og á myndrænu korti á Hafsjánni.

Deila: