Sæfari siglir afur eftir tíu vikna stopp

Grímseyjarferjan Sæfari fór í gær sína fyrstu siglingu í rúma tvo mánuði eftir að hafa verið í viðgerð frá því í janúar. Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV.
Ferjan sigldi síðast 16. janúar en var send í reglubundið viðhald og viðgerðir 19. janúar. Upphaflega var gert ráð fyrir að verkið tæki þrjár vikur, en tafir urðu og liðu alls tíu vikur þar til Sæfari komst aftur í rekstur.
Á meðan ferjan var í slipp féllu niður allar áætlunarsiglingar til Grímseyjar. Íbúum var bent á að nota flugsamgöngur, en vegna veðurs hafa þær ekki alltaf verið raunhæfur kostur og hefur fólk því í sumum tilvikum hvorki komist til né frá eyjunni um lengri tíma.
Tafirnar höfðu einnig áhrif á Hríseyinga þar sem Sæfari flytur reglulega frakt til eyjarinnar.
Grímseyingar eru ósáttir við stöðuna og segja rekstur Vegagerðarinnar á ferjunni hafa verið bagalegan. Þeir segjast langþreyttir á tíðum bilunum og benda á að ferjan sé orðin gömul og úr sér gengin, að því er fram kemur í fréttinni.

