Lætur af störfum eftir 43 ár hjá Samherja

Hákon Þröstur Guðmundsson útgerðarstjóri Samherja lætur af störfum í dag, 1. apríl, eftir nærri 43 ára starf hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja.
Hákon hóf störf haustið 1983, aðeins nokkrum vikum eftir að nýir eigendur tóku við félaginu og hófu að breyta togaranum Guðsteini GK í frystiskip. „Það hvarflaði náttúrulega ekki að mér að þarna væri verið að semja um farsæla samvinnu til 43 ára, sjálft ævistarfið,“ segir hann.
Hann rifjar upp að aðstæður í sjávarútvegi hafi verið erfiðar þegar hann steig sín fyrstu skref, en jafnframt hafi verið bjartsýni um nýja tíma með tilkomu frystitogara. Fljótlega eftir að hann hóf störf varð hann skipstjóri á Akureyrinni EA 10, aðeins 26 ára gamall, eftir að hafa byrjað sem háseti.
Á ferlinum kom Hákon að fjölmörgum verkefnum innan Samherja, bæði til sjós og lands. Hann var meðal annars skipstjórnarmaður á frystitogaranum Baldvini Þorsteinssyni EA 10 sem sló met í aflaverðmætum, og tók þátt í björgun skipsins þegar það strandaði árið 2004. „Þetta var sannkallað björgunarafrek og ég man enn eftir fögnuðinum sem braust út er skipið losnaði af strandstað,“ segir hann.
Árið 2007 flutti hann sig í land og tók við verkefnum við rekstur sívaxandi skipaflota Samherja. Hann segir miklar breytingar hafa orðið í sjómennsku á þessum tíma, bæði hvað varðar aðbúnað og tækninýjungar, auk þess sem öryggismál hafi tekið stakkaskiptum.
Hákon nefnir að fjölmargir viðburðir standi upp úr, þar á meðal veiðar í Smugunni, þróun nýrra veiðiaðferða, nýsmíði skipa og áskoranir á borð við heimsfaraldurinn. „Þegar maður lítur í baksýnisspegilinn tókst okkur að láta hjólin snúast svo að segja hnökralaust þann tíma sem þetta fár gekk yfir,“ segir hann.
Hann hefur einnig látið til sín taka í umhverfismálum og sat í stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Að hans mati er ábyrg nýting auðlinda lykilforsenda sjálfbærs sjávarútvegs.
Í tilkynningunni segir Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja að Hákon hafi verið „fremstur meðal jafningja“ og þakkar honum fyrir framlag sitt til félagsins.
Að lokum segir Hákon að hann líti með þakklæti yfir farinn veg. „Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með starfseminni í þessi 43 ár. Ég mun auðvitað sakna þess öfluga fólks sem starfar hjá Samherja en núna skapast aukið svigrúm til að sinna fjölskyldunni og vinum,“ segir hann.
Meðfylgjandi mynd er af vef Samherja.


