Nýr búnaður getur sparað dýran tíma á sjó

Sverrir Mjófjörð Gunnarsson trillubátasjómaður í Ólafsfirði hefur tekið upp nýja kynslóð færavinda frá DNG og er nú með fjórar R1 vindur um borð í báti sínum Ásdísi ÓF 9. Hann er einn þeirra sem hafa skipt alfarið yfir í nýju vinduna og segir breytinguna skýrt skref fram á við í þróun veiðibúnaðar.
Sverrir hefur um árabil stundað strandveiðar auk þess að veiða eigin kvóta á öðrum árstímum. Að hans sögn eru tækniframfarir lykillinn að þróun í greininni og R1 vindan marki tímamót þar sem hún tekur við af C6000 vindunni sem lengi hefur verið flaggskip í framleiðslu DNG.
„Mín skoðun er sú að það þarf alltaf að verða framþróun eins og er með R1 vindunni,“ segir Sverrir og bætir við að þótt það hafi tekið tíma að venjast nýjum stillingum hafi vindurnar fljótt orðið „eins og hugur manns“.
Íslenskt stjórnborð einfaldar notkun
Einn af helstu kostum nýju vindunnar að mati Sverris er að stjórnborðið er á íslensku sem gerir notendum kleift að stilla búnaðinn nákvæmlega eftir eigin þörfum. „Allt stjórnborð hennar er á íslensku og þannig eiga allir sem nota vinduna auðvelt með að stilla virkni hennar nákvæmlega eins og þeim hentar best,“ segir hann. Hann segir jafnframt að vindurnar bjóði upp á meiri og fjölbreyttari stillingarmöguleika en áður og aðgengi að þeim sé gott, sem skipti miklu máli í daglegum veiðum.
Dýrt að sitja eftir með gamlan búnað
Sverrir leggur áherslu á að fjárfesting í nýjum búnaði sé nauðsynleg fyrir framþróun í greininni og að það geti reynst dýrkeypt að halda í gamlan búnað. „Í vindum eins og allri annarri tækniframleiðslu þá gerist aldrei neitt ef menn taka ekki þátt og kaupa nýja tækni,“ segir hann.
Hann bendir á að þrátt fyrir að nýr búnaður kosti sitt sé hann ekki hlutfallslega dýrari en áður þegar litið er til fiskverðs. Á móti komi að bilanir í eldri búnaði geti haft veruleg áhrif á afkomu, sérstaklega í strandveiðum þar sem hver dagur skiptir máli. „Hver dagur frá veiðum vegna bilana er mjög dýrkeyptur,“ segir Sverrir.
Stýrir fjórum vindum einn
Á Ásdísi ÓF 9 er Sverrir með fjórar R1 vindur og segir hann auðveldlega ráða við þær einn, meðal annars vegna nýrra tæknilausna. Vindurnar eru samtengjanlegar með WiFi og hægt er að samstilla þær þannig að vinnan dreifist jafnt á milli þeirra. „Ef tvær vindur eru uppi þá hífa þær sem eru í sjó að keypa ekki upp fyrr en búið er að slaka hinum tveimur niður. Á þennan hátt er hægt að jafna vinnunni,“ segir hann.


