Flöskuháls við útgáfu strandveiðileyfa

Töluvert hefur verið haft samband við Landssamband smábátaeigenda vegna umsókna um strandveiðileyfi en margir smábátaeigendur eru í vandræðum vegna langra biðlista í skoðun á björgunarbátum hjá Viking í Hafnarfirði og Gúmmíbátaþjónustu Norðurlands. Eins og staðan er nú er ekki hægt að sækja um strandveiðileyfi án haffærisskírteinis. Þetta kemur fram á vef LS.
Samkvæmt nýrri reglugerð um strandveiðar frá 2026 er gerð skýr krafa um að skip uppfylli skilyrði um haffæri þegar sótt er um leyfi.. Þetta ákvæði hefur í framkvæmd orðið til þess að umsóknir tefjast þar sem skip fá ekki haffærisskírteini í tæka tíð vegna álags hjá skoðunaraðilum.
Innviðaráðuneytið og Fiskistofa hafa beðið Landssamband smábátaeigenda um að miðla því til félagsmanna að málið sé til skoðunar hjá ráðuneytinu, meðal annars möguleg reglugerðarbreyting til að bregðast við stöðunni. Vilyrði hefur verið gefið um að ófullnægjandi haffærisskírteini stöðvi ekki umsókn um strandveiðileyfi.


