Yfir fimm hundruð bátar komnir með leyfi

Deila:

Samtals hafa 543 bátar fengið strandveiðileyfi, að því er fram kemur á gagnasíðum Fiskistofu. Útgáfa leyfa er nú í fullum gangi en útgerðir greiða 72.000 krónur fyrir leyfið. Helmingur leyfanna hefur verið gefinn út á svæði A.

Fiskistofa skal auglýsa eftir umsóknum um leyfi til strandveiða á vefsíðu Fiskistofu. Umsóknir um leyfi til strandveiða skulu berast Fiskistofu á tímabilinu frá 1. mars og fyrir 15. apríl ár hvert.

Staða útgáfu strandveiðileyfa að morgni 8. apríl:

A. Vesturland 269
B. Strandir – Eyjafjörður 101
C. Norðaustur og austurland 56
D. Suðurland – Borgarfjarðar 117
Total 543
Deila: