Eiga von á kraftveiði í kolmunna

Skip Síldarvinnslunnar, Barði NK, Beitir NK og Börkur NK, héldu til kolmunnaveiða í gær og er von á að veiðar hefjist á næstu dögum á svonefndu gráu svæði syðst í færeysku lögsögunni. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Theodór Haraldsson skipstjóri á Barða segir útlitið gott. „Mér líst vel á þær. Við munum halda til veiða um hádegi í dag [gær] og verðum væntanlega komnir á miðin að lokinni viðkomu í Færeyjum annað kvöld. Veiðin mun eiga sér stað á hinu svonefnda gráa svæði syðst í færeysku lögsögunni en þangað er fiskurinn að ganga úr írsku lögsögunni,“ segir Theodór.
Hann bendir á að undanfarin ár hafi veiðar á þessu svæði verið mjög öflugar á þessum tíma. „Síðustu árin hefur þarna hafist kraftveiði um þetta leyti og hafa skipin verið að fá allt upp í 100 tonn á tímann. Í fyrra hófst veiðin þarna 6.–10. apríl og gekk afar vel. Ég held að íslensku kolmunnaskipin séu yfirleitt að leggja af stað á miðin um þetta leyti og menn eigi von á góðri veiði,“ segir hann.
Árangurinn á sama tíma í fyrra gefur vísbendingu um hvað gæti verið framundan. Þá barst fyrsti kolmunnafarmurinn til Neskaupstaðar 8. apríl þegar Börkur NK kom með fullfermi, 3.250 tonn, sem fengust í sex holum á tveimur og hálfum sólarhring á gráa svæðinu.
