Sjómannafélag Íslands boðar til verkfalla

Deila:

Félagsmenn Sjómannafélags Íslands hafa boðað til verkfalla í næstu viku sem ná annars vegar til farmanna og hins vegar til hafnarverkamanna. Verkföllin beinast að starfsemi Eimskips og munu hafa áhrif á skipin Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss.

Verkfall farmanna hefst að miðnætti 12. apríl og stendur til 16. apríl, en verkfall hafnarverkamanna hefst degi síðar, 13. apríl, og stendur til 15. apríl. Kjarasamningar farmanna hafa verið lausir frá áramótum en samningar hafnarverkamanna í tæp tvö ár.

Deila vegna hafnarverkamanna er nú til meðferðar hjá ríkissáttasemjara og hefur verið boðað til fundar í henni. Hins vegar semur Sjómannafélagið beint við Eimskip um kjaramál farmanna.

Deila: