Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, lönduðu bæði góðum afla í Grindavík eftir páskatúra. Páll Jónsson landaði 124 tonnum á annan í páskum en Sighvatur 70 tonnum í gærmorgun, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Benedikt Jónsson skipstjóri á Páli Jónssyni segir túrinn hafa gengið vel og skipið fyllst á þremur og hálfri lögn. Veitt var í Meðallandsbugt og var aflinn að mestu stór þorskur. Skipið kom snemma til hafnar á laugardagsmorgun sem gaf áhöfninni tækifæri til að njóta páskahátíðarinnar.
Túr Sighvats var hins vegar erfiðari. Að sögn Aðalsteins Rúnars Friðþjófssonar skipstjóra einkenndist hann af slæmu veðri, sérstaklega undir lokin, og þurfti að sækja á dýpri mið. Aflinn var mest þorskur en einnig langa og ýsa. Í upphafi túrs fylgdi Sighvatur netabátnum Kap VE til Vestmannaeyja vegna vélarvandræða í erfiðum aðstæðum.
Bæði skip hafa þegar haldið eða eru að halda aftur til veiða, en framundan er hrygningarstopp sem mun hafa áhrif á hvar línan verður lögð á næstu vikum.
Mynd/Jón Steinar Sæmundsson