„Þetta er versti mars sem ég man eftir“

Deila:

Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK fór aðeins í níu róðra í mars og landaði alls 74 tonnum, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Kristinn Arnberg Kristinsson skipstjóri segir mánuðinn hafa verið óvenju erfiðan. „Þetta er versti mars sem ég man eftir. Veiðin datt alveg niður þegar loðnan birtist og síðan kom hver óveðurslægðin annarri verri,“ segir hann. Hann bendir á að loðnugengd á miðunum hafi haft mikil áhrif þar sem fiskurinn hætti að taka króka þegar loðna var til staðar, auk þess sem slæmt veður hafi oft komið í veg fyrir róðra hjá 30 tonna báti eins og Fjölni.

Júlíus Magnús Sigurðsson skipstjóri tekur í sama streng og segir bæði loðnu og veður hafa unnið gegn útgerðinni í mars. Hann bendir þó á að fyrri mánuðir ársins hafi verið hagstæðari og að slíkar sveiflur séu þekktar. Fram undan sé einnig hrygningarstopp sem hafi áhrif á veiðar, þar sem lokað verði á hefðbundnum veiðisvæðum um tíma.

Að sögn skipstjóranna verður rólegt yfir rekstrinum á meðan stoppið gengur yfir, en kvótastaðan er góð og verkefni bíða þegar veiðar hefjast á ný.

Deila: