Verkfalli farmanna hjá Eimskip aflýst

Deila:

Sjómannafélag Íslands hefur aflýst boðuðu verkfalli farmanna á skipum Eimskips sem átti að hefjast 12. apríl, en verkfall hafnarverkamanna er áfram á dagskrá dagana 13. til 15. apríl. Þetta er haft eftiri Jónasi Garðarssyni formanni samninganefndar Sjómannafélagsins á mbl.is.

Að hans sögn hefur verkfalli farmanna verið frestað og málinu vísað til ríkissáttasemjara, en beðið er eftir skýrri afstöðu Eimskips um stöðu félagsins. Deila vegna hafnarverkamanna er hins vegar enn óleyst og verkfall þeirra stendur óbreytt, að því er fram kemur í fréttinni.

Deila: