Ekki lengur krafist haffærisskírteinis við umsókn

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur fallið frá því skilyrði að umsókn um strandveiðileyfi skuli synjað liggi gilt haffærisskírteini ekki fyrir við umsókn. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð.
Á hinn bóginn verður veiðileyfi ekki veitt nema skilyrði um haffærisskírteini séu uppfyllt.
Þetta gefur smábátasjómönnum sem hyggjast fara á strandveiðar rými til að sækja um leyfi þótt skoðunum sé ekki lokið. Fregnir hafa borist af því að mikill flöskulháls hafi myndast við skoðun björgunarbáta en umsóknarfresturinn var til 14. apríl.
Í reglugerðinni segir orðrétt:
„Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 3. gr. er Fiskistofu heimilt á strandveiðivertíðinni 2026 að synja ekki umsókn um strandveiðileyfi þótt skilyrði um haffærisskírteini séu ekki uppfyllt við umsókn skv. 1. mgr. 3. gr. Skal leyfi hins vegar ekki veitt fyrr en skilyrði um haffærisskírteini eru uppfyllt. Önnur skilyrði reglugerðarinnar skulu að öðru leyti vera uppfyllt.”
Auk þessa hefur umsóknarfresturinn verið lengdur um einn dag, eða til og með 15. apríl.
617 bátar eru komnir með strandveiðileyfi.
