Vorfundur smábátasjómanna vel sóttur

Vorfundur smábátasjómanna var haldinn 9. apríl í fyrsta sinn í samstarfi Landssambands smábátaeigenda, Samgöngustofu og Slysvarnafélagsins Landsbjargar. Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda.
Fundinum var streymt á netinu frá skólaskipinu Sæbjörgu í Reykjavíkurhöfn og jafnframt var sjómönnum víða um land boðið að koma saman í húsnæði eininga Slysvarnafélagsins Landsbjargar til að fylgjast með útsendingunni.
Góð þátttaka var á fundinum en miðað við fjölda sem opnuðu streymið og mættu á samkomustaði er áætlað að um 400 manns hafi fylgst með.
Fundurinn verður áfram aðgengilegur á heimasvæði hans á island.is, að því er fram kemur í tilkynningunni.