Hörð gagnrýni frá vestfirskum vinnslum

Deila:

Níu sjávarútvegsfyrirtæki og fiskvinnslur á Vestfjörðum hafa sent þingmönnum sameiginlega yfirlýsingu þar sem lagst er harðlega gegn frumvarpi innviðaráðherra um að afnema línuívilnun og skel- og rækjubætur.

Í yfirlýsingunni er varað við því að frumvarpið geti haft víðtækar og jafnvel óafturkræfar afleiðingar fyrir byggðir á Vestfjörðum. „Verði frumvarpið að lögum blasir við raunveruleg hætta á verulegri byggðaröskun á Vestfjörðum,“ segir þar, og bent er á að í versta falli geti byggð lagst af á Drangsnesi og starfsemi fyrirtækja á Hólmavík, Suðureyri og víðar dregist verulega saman eða lagst af.

Fyrirtækin leggja áherslu á að línuívilnun, skel- og rækjubætur og byggðakvótar myndi samþætt kerfi sem sé grundvöllur heilsársstarfsemi í mörgum sjávarbyggðum. Þá er sérstaklega bent á að áhrif frumvarpsins yrðu þung í smærri byggðarlögum þar sem stór hluti starfa tengist sjávarútvegi.

Í yfirlýsingunni er einnig varað við fækkun starfa og aukinni samþjöppun í greininni ef frumvarpið nær fram að ganga. „Þegar litlu og meðalstóru útgerðir leggja loks upp laupana er það einungis stóru útgerðirnar sem hafa bolmagn til þess að kaupa þá minni.“

Að lokum skora fyrirtækin á ráðherra að hætta við breytingarnar og hefja betra samráðsferli við greinina.

Deila: