Sóttu skipverja við Látrabjarg

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á öðrum tímanum í dag vegna skipverja sem slasaðist á fæti um borð í íslensku fiskiskipi út af Látrabjargi.
Áhöfn þyrlunnar TF-GRO hélt á vettvang þar sem skipið var statt nærri Bjargtanga, en vegna haugasjávar og erfiðra aðstæðna var ákveðið í samráði við skipstjóra að sigla skipinu inn fyrir Látrabjarg þar sem sjólag var hagstæðara.
Þyrlan fylgdi skipinu á meðan beðið var eftir betri aðstæðum og þegar þær höfðu skapast fóru læknir og sigmaður um borð. Þar hlúðu þeir að skipverjanum og undirbjuggu hann fyrir hífingu.
Aðgerðin gekk vel og var maðurinn hífður um borð í þyrluna og fluttur til Reykjavíkur.


