Vinnslustöðin hagnaðist um 1,5 milljarða

Deila:

Vinnslustöðin hf. náði sterkum viðsnúningi í rekstri á árinu 2025 þrátt fyrir krefjandi rekstrarskilyrði, takmarkaðan loðnukvóta og aukið álag á íslenskan sjávarútveg. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins 10. apríl.

Heildartekjur jukust um 4,8% og námu 187 milljónum evra, eða um 27 milljörðum króna. Hagnaður samstæðunnar nam 9,9 milljónum evra, jafnvirði um 1,5 milljarða króna, samanborið við tap árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir nam 41 milljón evra og jókst verulega frá fyrra ári.

„Það varð mikill viðsnúningur í rekstri samstæðunnar frá fyrra ári og niðurstaðan er góð miðað við að loðnukvóti var afar lítill. Það sýnir styrk rekstrarins, fjölbreytni starfseminnar og getu starfsfólks til að bregðast við breyttum aðstæðum,“ segir Guðmundur Örn Gunnarsson stjórnarformaður.

Á fundinum kom jafnframt fram að hækkun veiðigjalda og hærri rekstrarkostnaður hefðu kallað á erfiðar ákvarðanir. Á meðal þeirra var lokun Leo Seafood og sala á Þórunni Sveinsdóttur VE. „Þetta voru þungbærar ákvarðanir, bæði fyrir starfsfólk og samfélagið í Eyjum, en þær voru nauðsynlegar til að tryggja traustan rekstrargrundvöll félagsins til framtíðar,“ segir Guðmundur Örn.

Fjárhagsstaða félagsins styrktist á árinu, skuldir lækkuðu og eigið fé jókst. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði allt að 6 milljón evrur í arð til hluthafa.

Á aðalfundinum var einnig gagnrýnt að rekstrarumhverfi sjávarútvegs hafi versnað, meðal annars vegna hækkunar veiðigjalda. Guðmundur Örn segir skort á fyrirsjáanleika í gjaldtöku og regluverki þegar farinn að hafa áhrif á fjárfestingarákvarðanir fyrirtækja. „Við þurfum stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi til að geta haldið áfram að fjárfesta, skapa verðmæti og byggja upp samfélög um land allt,“ segir hann.

Deila: