Bleikja strauk úr landeldisstöð

Deila:

Um 500 bleikjur struku úr eldisstöð Matorku ehf. að Húsatóftum við Grindavík laugardaginn 11. apríl þegar bilun varð í búnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið sendi Matvælastofnun.

Samkvæmt upplýsingum frá Matorku var meðalþyngd fiskanna um 600 grömm. Strok átti sér stað þegar rist á útfalli kers gaf sig vegna tæringar með þeim afleiðingum að fiskurinn komst út í sjó með frárennslinu.

Viðbragðsáætlun var virkjuð strax að sögn fyrirtækisins og gert var við bilunina án tafar. Jafnframt voru gerðar ráðstafanir til að yfirfara ástand annarra kerja í stöðinni.

Matorka telur litlar líkur á að bleikjan sem strauk hafi lifað í fullsöltum sjó.

Matvælastofnun vinnur nú að rannsókn málsins og mun gefa út eftirlitsskýrslu þegar henni lýkur.

Deila: