Kolmuni streymir til Neskaupstaðar

Tæplega 8.000 tonn af kolmunna berast nú til fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á rúmum sólarhring þegar þrjú skip félagsins koma til hafnar hvert á fætur öðru með fullfermi.
Síldarvinnsluskipið Barði NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 1.720 tonn. Í dag er Börkur NK væntanlegur með 3.250 tonn og í kjölfarið kemur Beitir NK með 2.950 tonn.
Að sögn Theodórs Haraldssonar skipstjóra á Barða fór veiðin fram á gráa svæðinu syðst í færeysku lögsögunni. „Það var veitt á gráa svæðinu syðst í færeysku lögsögunni. Þegar við komum á miðin var ekki mikið að sjá en það breyttist þegar á leið og undir lokin varð vart við fisk á allstóru svæði og komin hörkuveiði. Við fengum aflann í fimm holum og var stutt dregið eða í átta til tíu tíma. Aflinn í holi hjá okkur var á bilinu 200 til 450 tonn. Það var leiðindaveður á miðunum allan tímann sem við vorum þar. Vindur var gjarnan í kringum 20 metra og í eina 15 tíma gátum við ekki verið að en þá fór vindurinn upp í 30 metra. Það er ljóst að fiskurinn var að ganga inn á gráa svæðið dagana sem við vorum þarna og ég tel að megi reikna með mjög góðri veiði á næstunni,“ segir Theodór.
Hafþór Eiríksson verksmiðjustjóri í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar segir vinnslu þegar hafna. „Barði kom í gærkvöldi og verksmiðjan er komin á fullan snúning. Þetta byrjar af krafti því Börkur og Beitir eru báðir væntanlegir með fullfermi. Við fyrstu sýn líst mér vel á hráefnið. Við erum semsagt að hefja spennandi vinnslutörn og vonandi helst veiðin góð þannig að vinnslan geti verið sem samfelldust. Hér í verksmiðjunni líst mönnum vel á þessa kolmunnavertíð sem er að hefjast,“ segir Hafþór.
