774 bátar mega veiða 774 kíló

774 bátar eru komnir með strandveiðileyfi, samkvæmt gagnasíðum Fiskistofu. Þannig vill til að hámarksafli þorsks í hverri veiðiferð er 774 kíló af óslægðum þorski.
Tæplega helmingur bátanna er skráður á A-svæði eða 363. 145 bátar eru skráðir á svæði B. 101 bátur er skráður á svæði C og 165 bátar á svæði D.
Strandveiðar hefjast í maí.