Fullfermi þrisvar á viku

Ísfisktogarar Bergs – Hugins í Vestmannaeyjum, Bergey VE og Vestmannaey VE, hafa landað fullfermi þrisvar sinnum á innan við viku. Fyrst lönduðu skipin í Þorlákshöfn, síðan í Grindavík og loks í heimahöfn í Vestmannaeyjum í gær og fyrradag.
Ragnar Waage Pálmason skipstjóri á Bergey segir aflabrögðin hafa verið afar góð. „Við lönduðum í Eyjum á mánudagskvöld og aflinn var nær eingöngu ýsa. Það var dálítið af ufsa og þorski með. Við byrjuðum á Selvogsbankanum og tókum þrjú hol en síðan hófst hrygningarstopp þar á miðnætti á laugardag. Vegna stoppsins færðum við okkur austur eftir og tókum tvö hol á Síðugrunni og loks tvö á Öræfagrunni og þar var skipið fyllt. Túrinn var stuttur eins og aðrir túrar að undanförnu en töluverður tími fór í siglingar að þessu sinni. Það er ekki hægt að vera annað en ánægður með eflabrögðin að undanförnu,“ segir Ragnar.
Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey tekur í sama streng og segir veiðina síðustu daga hafa gengið mjög vel. „Þetta er búin að vera hörkuveiði og ekki hægt að kvarta undan neinu. Við lönduðum fullfermi í Eyjum í gær og aflinn var mest ýsa. Þetta var fínasti fiskur. Við hófum veiðina á Selvogsbankanum en færðum okkur síðan austar vegna hrygningarstoppsins og kláruðum túinn á Síðugrunni og Öræfagrunni. Þetta gekk vel og veðrið var þokkalegt. Það var kaldi til að byrja með en síðan ljómandi veður. Það er ekki hægt að vera annað en sáttur við aflabrögðin upp á síðkastið. Þetta hefur allt saman gengið eins og í sögu,“ segir Birgir Þór.
Skipin halda aftur til veiða á morgun.

