Vilhelm á kolmunaveiðar

Deila:

Uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, hóf kolmunaveiðar syðst í færeysku lögsögunni, á svokölluðu gráa svæðinu, í liðinni viku.. Þetta kemur fram vef Samherja.

Rætt var við Birki Hreinsson skipstjóri á útleiðnini. Hann reiknaði með tveggja sólarhringa siglingu. „ Við erum núna austur af landinu, hérna er suð-vestan kalda skítur, í kringum 18 metrar á sekúndu en okkur miðar vel áfram enda Vilhelm Þorsteinsson afburða gott skip. Siglingin á veiðislóðina tekur um tvo sólarhringa. Á gráa svæðinu hefur verið góð veiði á undanförnum árum á þessum tíma árs og vonandi verður hið sama uppi á teningnum í ár. Ég er að minnsta kosti þokkalega bjartsýnn í upphafi kolmunnavertíðar og þeir skipstjórar sem ég hef talað við eru sama sinnis,“ segir Birkir.

Hann bendir á að vertíðir taki hver við af annarri hjá uppsjávarskipunum. „ Loðnuvertíðinni lauk í mars og gekk sú vertíð vel. Við vorum í landi í þrjár vikur, svo tekur kolmunninn við og þar á eftir makríllinn. Tíminn í landi var nýttur til að dytta að ýmsum hlutum um borð og gera allt klárt fyrir komandi vertíð,“ segir Birkir Hreinsson skipstjóri.

Deila: