Páll og Sighvatur lönduðu í heimahöfn

Línuskipin Páll Jónsson GK og Sighvatur GK lönduðu bæði í heimahöfn í Grindavík fyrr í vikunni eftir veiðiferðir þar sem aflabrögð voru nokkuð ólík. Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Páll Jónsson landaði á mánudag og var Benedikt Jónsson skipstjóri mjög ánægður með túrinn. „Við vorum með 120 tonn, langmest af aflanum var þorskur en síðan var dálítið af ýsu og löngu með. Við fengum þetta í fimm lögnum. Fjórar voru teknar á Stressinu út af Sandgerði og ein í Hólakantinum 10 mílum sunnar. Það fékkst álíka mikið í öllum lögnunum. Í túrnum fengum við einn góðan dag hvað veður áhrærir en annars var bölvaður bræluskítur allan tímann. Við förum einn túr í viðbót áður en kemur að vélarupptekt og þá fá strákarnir góða pásu,“ segir Benedikt.
Sighvatur landaði síðan í gær og var Óli Björn Björgvinsson skipstjóri síður sáttur við veiðina. „Við lögðum áherslu á það í þessum túr að veiða annað en þorsk og það hefði mátt ganga dálítið betur. Aflinn var rúm 70 tonn og var mest af löngu í honum. Við byrjuðum á að taka eina lögn úti í Grindavíkurdýpisbotni, síðan var farið út á Fjöll og teknar tvær lagnir þar og þaðan á Grjóthrygg þar sem tekin var ein lögn. Við enduðum síðan á Eldeyjarbankanum og tókum þar tvær lagnir. Oft hefur fengist góður og blandaður afli á þessum miðum á þessum árstíma en nú var aflinn í minna lagi en hins vegar vel blandaður eins og til stóð,“ segir Óli Björn.
Bæði skip héldu aftur til veiða fljótlega eftir löndun.
