Samstarf lykill í rannsóknum

Deila:

Vísindamenn frá Íslandi, Færeyjum, Danmörku og Noregi komu nýverið saman í Þórshöfn til að ræða hvernig efla megi samstarf erfðafræðinga og fiskifræðinga í vistfræðilegum rannsóknaverkefnum. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar.

Fundurinn var haldinn með stuðningi úr Rannsóknasjóði Færeyja en Áki Jarl Láruson stofnerfðafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun var meðal umsækjenda að verkefninu. Á vinnustofunni voru kynningar frá báðum fræðasviðum þar sem farið var yfir nýjustu framfarir í erfðafræði, þróun sameindarannsókna, dæmi um árangursríkt samstarf og þær áskoranir sem upp koma þegar fræðigreinar skarast.

Eitt af því sem stóð upp úr var umræða um sýnatöku á sjó. Fram kom að breytingar í aðferðafræði, þar sem nú er í auknum mæli unnið með heil erfðamengi í stað fárra erfðavísa, geri eldri aðferðir við sýnatöku oft ófullnægjandi. Því geti erfðamengjafræðingar átt erfitt með að nýta eldri sýni þrátt fyrir að þau hafi áður talist góð.

Áhersla var lögð á að sýnataka á hafi úti sé krefjandi og að taka þurfi mið af þeim takmörkunum sem fylgja vinnu við slíkar aðstæður. Bætt samskipti milli vísindamanna, bæði innan og á milli landa, ásamt skýrari verkferlum, geti skipt sköpum fyrir gæði gagna og árangur rannsókna.

Þá kynnti þýska fyrirtækið LVL sérhönnuð rannsóknaverkfæri og bauð upp á frekara samstarf um þróun búnaðar sem hentar betur við erfiðar aðstæður á sjó.

Niðurstaða vinnustofunnar var skýr: framfarir í erfðamengjafræði nýtast ekki til fulls nema tryggt sé náið samstarf erfðafræðinga og fiskifræðinga og að rannsóknir séu skipulagðar með það að markmiði að tryggja bæði gæði gagna og skilvirk samskipti.

Að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar var vinnustofan mikilvægt skref í að efla áreiðanleika erfðafræðirannsókna sem styðja við sjálfbærar fiskveiðar á alþjóðavettvangi.

Meðfylgjandi mynd er af vef Hafró.

Deila: