Birtingur með góðan karfaafla

Ísfisktogarinn Birtingur NK landaði í gær 100 tonnum af gullkarfa í Hafnarfirði eftir stutta veiðiferð á Melsekk. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Aflinn fékkst á rúmlega tveimur sólarhringum og var að sögn skipstjóra jafnt og þétt góð veiði mestallan tímann.
Í fréttinni er rætt við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra sem segir túrinn hafa gengið vel. „Hún gekk ágætlega. Þetta er önnur veiðiferð okkar á skipinu og það tekur alltaf dálítinn tíma að finna taktinn og læra á skip. Það hjálpaði til í þessari veiðiferð að veðrið var gott þar til í blálokin. Við fengum þennan karfa á rúmlega tveimur sólarhringum og um er að ræða fínasta fisk.“
Hann segir veiðina hafa verið stöðuga lengst af en að lokum hafi tekið við kraftmikil veiði. „Veiðin var lengst af jöfn og góð en í endann brast á sprengjuveiði og menn þurftu að gæta sín á að fá ekki alltof mikið. Hér um borð eru menn bara hressir og bjartsýnir en það þarf að sinna örlitlum lagfæringum áður en haldið verður út á ný,“ segir Hjálmar Ólafur.

