Sami fjöldi sótti um strandveiðileyfi

Deila:

Umsóknartímabil um strandveiðileyfi fyrir komandi vertíð er lokin. Þegar þetta er skrifað hafa færri leyfi verið gefin út samanborið við í fyrra. Hins vegar eru 48 umsóknir enn óafgreiddar. Þau skip bíða væntanlega flest haffæris áður en leyfið verður gefið út. Svo virðist sem nokkur samdráttur sé í fjölda báta á svæði D, þar sem veiði var víða treg á síðasta ári. Það átti sérstasklega við um Faxaflóa. Þetta má sjá í samantekt yfir fjölda báta með leyfi eftir landshlutum á árunum 2020 til 2026.

Samkvæmt tölunum hafa 792 leyfi verið gefin út í ár, samanborið við 841 leyfi í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu eru 48 umsóknir enn óafgreiddar. Samanlagt er fjöldinn því svipaður og í fyrra. Umsóknarfresturinn var til 15. apríl.

Á móti kemur að enn stefnir í fjölgun á svæði A. Leyfin eru orðin 354 en búast má við að um 20 bætist við.

Athygli vekur að árið 2020 voru 249 bátar með leyfi á svæði A af samtals 677 bátum, eða um 37% af heildinni. Í ár eru 366 bátar á svæði A af alls 791 bát, sem jafngildir um 46%. Hlutfall svæðis A hefur því aukist verulega á tímabilinu og er nú nær helmingur allra strandveiðibáta.

Þróunin bendir til þess að aflabrögð hafi áhrif á þátttöku eftir svæðum, en svæði D sker sig úr þar sem veruleg fækkun fylgir slakari veiði á síðasta tímabili. Á heildina skal einnig haft í huga að reglur um umsóknir voru í vetur hertar frá því sem verið hafði.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Deila: