Raunverulegar samningaviðræður

Deila:

Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir að engar aðildarviðræður við sambandið séu eins og að hvert umsóknarríki sé metið út frá eigin aðstæðum. Þetta kom fram á sameiginlegum blaðamannafundi hans og Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Kadis segir að samningaviðræður við Evrópusambandið séu raunverulegar samningaviðræður þar sem tekið sé tillit til sérstöðu ríkja. „Engin tvö aðildarferli eru eins. Hvert land er metið út frá eigin verðleikum, eigin aðstæðum – þessum sérkennum hvers lands,“ segir hann.

Hann bendir á að sjávarútvegsmál skipti Íslendinga miklu máli og að dæmi séu um að tekið hafi verið sérstakt tillit til slíkra sérkenna í fyrri viðræðum. Hins vegar undirstrikar hann að viðræður við Ísland hafi ekki verið teknar upp á ný og því sé ekki hægt að segja til um niðurstöðu.

„Leyfið mér að taka það skýrt fram að ég get ekki spáð fyrir um hver niðurstaða samningaviðræðnanna verður. Samningaviðræður eru raunverulegar samningaviðræður og þær eru ekki hafnar aftur enn þá,“ segir Kadis.

Kadis er staddur hér á landi í heimsókn og hefur meðal annars heimsótt Grindavík. Þá stendur til að hann heimsæki sjávarútvegsfyrirtækið Brim. Hann segir að það sem hann hafi séð hér á landi hafi vakið athygli, sérstaklega sérþekking og frumkvöðlastarf íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi.

Deila: