Samstarf Íslands og ESB um hafið í brennidepli

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins sátu árlegan samráðsfund í Reykjavík í dag ásamt sendinefndum Íslands og ESB.
Á fundinum voru málefni hafsins í forgrunni og rætt um leiðir til að efla samstarf aðila á sviði sjávarútvegs og tengdra mála. Fundurinn er haldinn í samræmi við viljayfirlýsingu Íslands og ESB frá júlí í fyrra þar sem kveðið er á um aukið samstarf, meðal annars um vernd líffræðilegs fjölbreytileika og orkuskipti í sjávarútvegi og fiskeldi.
Einnig var fjallað um samstarf í málefnum norðurslóða, sjálfbærar fiskveiðar, vísindarannsóknir og fiskeldi.
Atvinnuvegaráðherra segir fundinn mikilvægan vettvang fyrir áframhaldandi samstarf. „Sem fyrr leggjum við megináherslu á samstarf um sjálfbærar fiskveiðar og áskoranir sem við blasa í málefnum hafsins,“ segir Hanna Katrín Friðriksson. „Árlegur samráðsfundur okkar með sjávarútvegsstjóra ESB er mikilvægur vettvangur til að vinna sameiginlega að stefnumörkun og lausnum til framtíðar, öllum til heilla.“

