Gunnþór ÞH afslahæstur á grásleppu

Deila:

Gunnþór ÞH er aflahæsti báturinn á grásleppuveiðum það sem af er árinu. Gunnþór hefur landað 21 tonni í 19 löndunum. Athygli vekur að næstaflahæstur er togarinn Sigurborg SH, sem veiðir í botnvörpu. Skipið hefur veitt 20 tonn af grásleppu á þessu ári.

Vert er að taka fram að grásleppuveiðar eru mjög misjafnlega langt á veg komnar eftir svæðum.

Kóngsey ST-4 hefur landað tæplega 20 tonnum í aðeins fimm róðrum en Norðurljós NS (9 landanir) og Helga Sæm (15 landanir) fylgja fast á eftir.

Kóngsey ST, sem landar á Drangsnesi, á tvær stærstu landanir vertíðarinnar. Skipið landaði 6,6 tonnum af grásleppu þann 10. apríl og 4,6 tonnum þann 6. apríl.

Mest hefur komið að landi af grásleppu á Bakkafirði (71 tonn í 51 löndun) en Raufarhöfn (67 tonn í 71 löndun) fylgir þar á eftir.

Meðalvigtin er mest á Drangsnesi, 2,6 tonn að jafnaði, en Hólmavík (1,9 tonn) og Akranes (1,8 tonn) koma í næstu sætum.

Deila: