Vertíð skemmtiferðaskipa hafin

Vertíð skemmtiferðaskipa fyrir árið 2026 er hafin en fyrsta skip ársins, AIDA Sol, kom til Reykjavíkur í gær og lagðist að bryggju við Skarfabakka. Um borð eru 2.317 farþegar og heldur skipið áfram siglingu til Ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar áður en það yfirgefur íslenska lögsögu. Þetta kemur fram á vef Faxaflóahafna.
Áætlað er að alls komi 301.567 farþegar til Reykjavíkur með skemmtiferðaskipum á tímabilinu vor, sumar og haust. Af þeim eru 164.785 skiptifarþegar, eða 54,6% af heildarfjöldanum, sem hefja eða ljúka ferð sinni hér á landi. Fram kemur að Faxaflóahafnir hafi unnið markvisst að því að fjölga þessum hópi þar sem hann dvelur lengur og skapar meiri verðmæti fyrir íslenskt hagkerfi.
Bókaðar eru 221 skipakomur til Faxaflóahafna á árinu, sem er fækkun um 18 komur frá fyrra ári. Af þessum komum eru 155 tengdar farþegaskiptum. Síðasta skip vertíðarinnar verður Pacific World sem leggst að bryggju í Reykjavík 11. október.
Á síðasta ári heimsóttu rúmlega 330.000 farþegar hafnir Faxaflóahafna og jókst hlutfall skiptifarþega um 15% frá árinu áður.
