Hanna bolfiskvinnslu í kanadískan togara

Deila:
Slippurinn DNG bolfiskvinnsla kanadískur togari

Slippurinn DNG hefur undirritað samning við kanadíska útgerðarfyrirtækið MV Osprey Ltd. um hönnun, smíði og uppsetningu á bolfiskvinnslulínu um borð í rækjufrystitogarann Northern Osprey III. Gert er ráð fyrir að skipið komi til Akureyrar í september og að uppsetning hefjist strax í kjölfarið.

Magnús Blöndal sviðsstjóri DNG vinnslubúnaðar segir verkefnið spennandi og samstarfið við útgerðina hafa gengið vel. „Þetta er mjög spennandi verkefni fyrir Slippinn DNG. Samstarfið við útgerðina hefur verið til fyrirmyndar við hönnun á fyrirkomulagi og við hlökkum til að fá skipið norður í haust,“ segir hann.

Bolfiskvinnslulína fyrir rækjufrystitogara

Við hönnun vinnslulínunnar var lögð áhersla á afköst, góða aflameðferð og nákvæma flokkun og pökkun. Ásþór Sigurgeirsson hönnuður hjá DNG segir áskorunina hafa falist í að koma afkastamikilli línu fyrir innan þess rýmis sem til staðar er um borð. Jafnframt hafi verið til staðar svigrúm í skipinu fyrir slíka vinnslu.

Northern Osprey III hefur hingað til eingöngu verið gerður út á rækjuveiðar en aukinn þorskkvóti við Nýfundnaland gerir það að verkum að bolfiskvinnslan bætist nú við sem nýtt tekjuöflunartækifæri. Með nýju vinnslulínunni verður hægt að nýta skipið betur yfir árið og stefnt er að því að það stundi bolfiskveiðar í þrjá til fjóra mánuði árlega.

Keith Coady útgerðarstjóri hjá MV Osprey Ltd. segir samstarfið við DNG hafa verið jákvætt og innleiðingu bolfiskvinnslu mikilvægt skref fyrir reksturinn. „Innleiðing á bolfiskvinnslu er mikilvægt framfaraskref fyrir útgerðina og Labrador Fishermen’s Union Shrimp Company Ltd. Bæði styrkir það reksturinn og langtíma efnahag svæðisins,“ segir hann.

Á myndinni, sem er af vef Slippsins, eru Magnús Blöndal og Keith Coady, þegar samningurinn var handsalaður.

Deila: