Hörð dönsk gagnrýni á íslenskan sjávarútveg

Íslenskur sjávarútvegur er harðlega gagnrýndur í nýrri umfjöllun danska dagblaðsins Berlingske, þar sem atvinnugreinin er sögð byggð á „ótta, græðgi og pólitískum áhrifum“ og lýst sem „nútíma fámennisstjórn“. Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV sem byggir á umfjöllun danska miðilsins.
Blaðamaður Berlingske ræddi við 19 heimildarmenn, þar á meðal stjórnmálamenn, sérfræðinga og fólk úr greininni. Í greininni er því haldið fram að sjávarútvegurinn hafi lagt sitt af mörkum til ríkissjóðs en sé jafnframt að „éta upp lýðræði landsins að innan“. Þá er því lýst að kvótakerfið hafi farið úr böndunum og leitt til þess að yfirstétt innan greinarinnar hafi óhófleg áhrif á pólitískar ákvarðanir.
Einnig er fjallað um Samherjamálið og svokallaða skæruliðadeild, sem heimildarmenn segja grundvallarógn við fjölmiðlafrelsi á Íslandi. Haft er eftir Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra að hann hafi lengi reynt að „leysa vandann“ en að „öflugir þrýstihópar“ standi í vegi, og eru tengsl stjórnmála og sjávarútvegs sérstaklega nefnd.
Viðbrögð úr greininni hafa ekki látið á sér standa. Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims segir í viðtali við RÚV að umfjöllunin dragi upp ranga mynd af íslenskum sjávarútvegi og samfélagi. Hann segir allt uppi á borðum í greininni og að fyrirtækin fylgi íslenskum lögum.
„Mér finnst hann gera lítið úr okkar stjórnkerfi. Hann segir að hér sé spilling og að við fylgjum ekki íslenskum lögum,“ segir Guðmundur og bendir á að lög um kvótakerfið hafi verið samþykkt af Alþingi og að eftir þeim hafi verið farið í áratugi.
Hann segir jafnframt að hann hafi ekki orðið var við að stjórnmálamenn starfi í þágu þröngra hagsmuna. „Ég hef ekki orðið var við það að þeir væru að hugsa um einhvern lítinn þröngan hóp. Lögin eru sett til að búa til verðmæti fyrir allt landið,“ segir hann.
Guðmundur gagnrýnir einnig ummæli fjármálaráðherra í erlenda miðlinum og segir þau gefa í skyn að stjórnvöld ráði ekki við að framfylgja eigin lögum. „Ég segi það fullum fetum að við förum eftir íslenskum lögum. Mér finnst það miður að hann skuli tjá sig svona um íslenskt samfélag í erlendu blaði,“ segir hann.

