„Lykilatriði fyrir okkur að vera sýnileg“

Alþjóðlega sjávarútvegssýningin Seafood Expo Global stendur yfir í Barcelona dagana 21. – 23. apríl. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum þar sem fyrirtæki frá um níutíu þjóðlöndum kynna vörur, búnað og þjónustu. Á vef Samherja er fjallað um sýninguna.
Samherji og Ice Fresh Seafood eru með bás á sýningunni þar sem tekið er á móti gestum víðs vegar að úr heiminum. Ice Fresh Seafood sér um sölu á afurðum Samherja og fleiri fyrirtækja.
Unnur Inga Kristinsdóttir sölustjóri hjá Ice Fresh Seafood segir að mikil aðsókn sé og stemning góð þrátt fyrir þétta dagskrá. „Þessi sýning er afskaplega mikilvæg í okkar starfi. Hérna hittir maður samstarfsfélaga og viðskiptavini alls staðar að úr heiminum og saman myndum við einstaka stemmingu svo eftir er tekið. Við mætum hingað árlega, vel undirbúið samheldið teymi. Markmiðið er að efla okkur enn frekar, hámarka verðmætasköpun, styrkja núverandi viðskiptasambönd og jafnframt að skapa ný tækifæri,“ segir hún.
Hún segir persónuleg samskipti skipta miklu máli, sérstaklega á krefjandi alþjóðamarkaði. „Til að tryggja sterka stöðu er lykilatriði fyrir okkur að vera sýnileg og hafa burði til að framleiða og afhenda okkar eftirsóttu afurðir fyrir kröfuharðan alþjóðamarkað,“ segir Unnur.
Myndirnar eru fengnar af vef Samherja.

