Byggja upp stórar verksmiðjur á Indlandi

Deila:

Hampiðjan hefur hafið umfangsmikla uppbyggingu á nýju iðnaðarsvæði í Auric við Aurangabad á Indlandi í kjölfar kaupa félagsins á indverska fyrirtækinu Kohinoor, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hampiðjunni.

Um er að ræða 120.000 fermetra lóð með heimild til að byggja allt að 76.000 fermetra. Nú þegar er hafin bygging tveggja 28.000 fermetra verksmiðjuhúsa, annars vegar netaverkstæðis fyrir fiskeldisnet og veiðarfæri og hins vegar verksmiðju fyrir net. Einnig verða reist 2.000 fermetra skrifstofur og 1.200 fermetra þjónustu- og mötuneytisaðstaða. Þegar starfsemin verður komin í fullan gang er gert ráð fyrir um 750 starfsmönnum á svæðinu.

Lóðin eins og hún er.

Heildarbyggingarmagn í fyrsta áfanga nemur 59.200 fermetrum og er áætlað að fyrsta húsið verði tilbúið í lok júlí og það síðara í lok ágúst. Aðrar byggingar verða fullbúnar í október og frágangi svæðisins lýkur í nóvember. Heildarfjárfesting í byggingunum nemur um 13,8 milljónum evra auk 4,8 milljóna evra kostnaðar við lóðina.

Fram kemur að byggingarkostnaður sé um 234 evrur á fermetra, sem jafngildir um 34 þúsund krónum og telst lágt í alþjóðlegum samanburði.

Í tilkynningunni er haft eftir Hirti Erlendssyni forstjóra Hampiðjunnar að uppbyggingin sé mikilvægt skref fyrir félagið. „Þessi uppbygging er mikilvægt skref í að styrkja framleiðslugetu okkar og auka hagkvæmni og sveigjanleika í rekstri,“ segir Hjörtur.

Áhersla verður lögð á framleiðslu fyrir bæði fiskeldi og veiðarfæri og er gert ráð fyrir að starfsemi í netaverkstæðinu hefjist í september. Sérstök áhersla er á framleiðslu fiskeldiskvía, þar á meðal úr stífu pólýetýleni sem krefst handsaums og er því mannaflsfrek framleiðsla sem hentar vel á Indlandi.

Staðsetningin í Auric er talin bjóða upp á góða innviði, aðgengi að vinnuafli og hagkvæmar tengingar við markaði. Nálægðin við starfsemi Kohinoor í Jalna og Selu skapar jafnframt samlegð sem styður við frekari vöxt Hampiðjunnar á þessu sviði.

Deila: