Kókaín breytir hegðun laxa

Ný rannsókn frá sænska landbúnaðarháskólanum SLU sýnir að lyfjaleifar í vatni geta haft veruleg áhrif á hegðun laxa. Í rannsókninni kom fram að laxar sem urðu fyrir áhrifum kókaíns syntu meira og dreifðu sér yfir stærra svæði en aðrir fiskar.
Samkvæmt rannsókninni var það einkum niðurbrotsefnið benzoylecgonine, sem er algengasta afleiða kókaíns, sem hafði áhrif á hegðun fiskanna. Laxarnir urðu áræðnari og syntu nær tvöfalt lengri vegalengd en þeir fiskar sem ekki höfðu orðið fyrir áhrifum efnisins. Þá sýndu þeir einnig stöðuga hreyfingu án þess að taka hlé.
Tomas Brodin prófessor við SLU segir að niðurstöðurnar sýni að áhrif lyfjaleifa í náttúrunni séu líklega vanmetin. „Ef þú borðar fisk úr á eða læk í Svíþjóð í dag, þá inniheldur hann ólögleg lyf,“ segir hann.
Rannsakendur benda á að umhverfismat taki oft aðeins mið af upprunalegum mengunarefnum en ekki niðurbrotsefnum þeirra. Jack Brand, fyrsti höfundur rannsóknarinnar, segir að niðurstöðurnar bendi til þess að slíkar afleiður geti haft raunveruleg áhrif á villta stofna og að möguleg umhverfisáhrif séu ekki að fullu metin.
Breytt hegðun getur haft áhrif á lífslíkur fiskanna, meðal annars með því að auka hættu á að þeir verði bráð rándýra. „Því meira sem fiskar eru á ferðinni, því meiri hætta er á að þeir verði étnir,“ segir Brodin.
Rannsakendur telja að grípa þurfi til aðgerða, meðal annars með bættri hreinsun frárennslis og auknu eftirliti með lyfjaleifum í vatni. Þó er tekið fram að styrkur efnanna sé mjög lítill og ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af neyslu fisks, enda hverfi efnin úr líkama fiskanna áður en þeir ná veiðistærð.
