Smábátur fékk veiðarfærin í skrúfuna

Deila:

Lítill fiskibátur varð aflvana utarlega í Patreksfirði skömmu fyrir hádegi þegar veiðarfæri festust í skrúfu hans. Skipstjóri tilkynnti um atvikið og var björgunarskipið Vörður II kallað út með forgangi þar sem báturinn var nálægt landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Veður var fremur rólegt á svæðinu og rak bátinn hægt, en ákveðið var að bregðast hratt við. Vörður II lagði úr höfn á Patreksfirði klukkan 11:21, um tíu mínútum eftir útkall. Um tuttugu mínútum síðar var komið að bátnum og skömmu fyrir klukkan 12 var dráttartaug komin á milli skipanna og haldið með bátinn til hafnar.

Aðgerðin gekk vel og eru bæði skip komin heilu og höldnu til Patreksfjarðar. Unnið er að því að gera Vörð II kláran fyrir næstu verkefni.

Útköllum á björgunarskipið fer nú fækkandi þar sem nýtt björgunarskip er væntanlegt til Patreksfjarðar síðar á árinu. Skipið er í smíðum í Finnlandi og fékk áhöfn Varðar II nýverið tækifæri til að kynna sér ný skip þegar áhöfn Guðmundar í Tungu, nýs björgunarskips á Ísafirði, heimsótti Patreksfjörð.

Deila: