Úthlutun úr Fiskeldissjóði árið 2026

Stjórn Fiskeldissjóðs úthlutar styrkjum til 14 verkefna í sex sveitarfélögum, samtals að fjárhæð 554.000.000 kr. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
„Í samráði við fulltrúa þeirra sveitarfélaga sem eiga rétt á að sækja um styrki úr sjóðnum var umsóknarferli sjóðsins einfaldað fyrir úthlutunarárið 2026, meðal annars með það að markmiði að stytta umsóknarferlið og gera kröfur til umsókna skýrari og markvissari og er úthlutun nú um tveimur mánuðum fyrr en árið 2025.”
Eftirfarandi verkefni hljóta styrk að þessu sinni:
Bolungarvíkurkaupstaður – 87.586.118 kr.
- Endurbætur á Grunnskólanum í Bolungarvík: 17.802.057 kr.
- Lundahverfi – nýtt íbúðahverfi í Bolungarvík: 35.604.113 kr.
- Völusteinsstræti – endurnýjun gatna, fráveitu: 34.179.949 kr.
Fjarðabyggð – 106.812.339 kr.
- Framkvæmdir á Fjarðabyggðarhöllinni: 46.296.370 kr.
- Framkvæmdir á Stríðsárasafninu: 45.304.305 kr.
- Kaup á slökkvibíl og björgunarbúnaði: 15.211.664 kr.
Ísafjarðarbær – 106.812.339 kr.
- Bygging slökkvistöðvar: 106.812.339 kr.
Múlaþing – 106.812.339 kr.
- Markarland, endurnýjun veitulagna, götur og gangstéttar: 45.222.959 kr.
- Stækkun Grunnskóla Seyðisfjarðar: 30.707.111 kr.
- Víkurland athafnasvæði – gatnagerð og lagnir 1. áfangi: 30.882.269 kr.
Súðavíkurhreppur – 39.164.524
- Líkamsrækt í Súðavík, viðbygging við Súðavíkurskóla: 14.241.645 kr.
- Samkomuhúsið í Súðavík – endurbætur: 24.922.879 kr.
Vesturbyggð – 106.812.339 kr.
- Malbiksframkvæmdir: 76.812.339 kr.
- Skólalóð á Bíldudal: 30.000.000 kr.
Samtals: 554.000.000 kr.
Skipting eftir landshlutum:
- Vestfirðir: 340.375.320 kr.
- Austurland: 213.624.678 kr.
Almennar áherslur sjóðsins árið 2026 voru að umsóknarverkefni skyldu stuðla að öflugri og sjálfbærri uppbyggingu innviða í sveitarfélögum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað. Sérstök áhersla var meðal annars lögð á uppbyggingu innviða vegna skóla- og frístundastarfs, úrbætur á fráveitu og neysluvatni, uppbyggingu og undirbúning íbúðahverfa, brunavarnir, hafnarsvæði og verkefni sem efla mannlíf og heilsueflingu.
