Stofnmæling að hefjast

Deila:

Dagana 27. apríl til 15. maí verður rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir við stofnmælingar á norsk-íslenska síldarstofninum og að kanna ástand vistkerfi sjávar austur og norðaustur af landinu. Þetta kemur fram á vef Hafró. Þar segir:

„Um er að ræða árlegan alþjóðleganleiðangur sem hefur verið farinn síðan árið 1996, og fagnar því 30 ára afmæli í ár. Til viðbótar við Þórunni taka skip þátt í leiðangrinum frá Bretlandi, Færeyjum, Danmörku og Noregi. Niðurstöður leiðangursins verða kynntar í sameiginlegri leiðangursskýrslu til Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) undir lok sumars.”

Deila: