Minni grásleppuafli en í fyrra

Grásleppuveiðar hafa farið rólega af stað á þessari vertíð og er aflinn um þúsund tonn, sem er 30% minna en á sama tíma í fyrra. Þá hafa færri bátar hafið veiðar, eða 102 talsins, sem er rúmlega fimmtungi færra en í fyrra, að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda.
Mest hefur borist á land á Bakkafirði, alls 131 tonn, og aflahæsti báturinn er Norðurljós NS40 með 31,1 tonn.
Útgefið aflamark er 2.914 tonn, sem er 9% aukning frá síðasta ári. Samhliða því hefur verið nýtt heimild til tegundatilfærslu sem nemur nú 156 tonnum og gerir skipum án eigin heimilda kleift að veiða grásleppu.
Miklar verðsveiflur einkenna markaðinn. Verð var gott fram að páskum en eftirspurn minnkar eftir það samhliða auknu framboði þegar vertíðin nær hámarki. Þrátt fyrir hægari byrjun eru sjómenn bjartsýnir á framhaldið, enda hefur eftirspurn aukist vegna minni veiði annarra þjóða á síðasta ári.
Ekki er þó búist við að heildarafli aukist verulega þrátt fyrir auknar heimildir, meðal annars vegna þess að Grænlendingar hafa skert sitt aflahámark um 10%.
Útflutningsverðmæti grásleppuafurða nam 1,6 milljörðum króna árið 2025.
