Mokveiði hjá Eyjatogurum

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE hafa fengið mjög góðan afla að undanförnu og hefur veiðin verið það mikil að skipin hafa þurft að hægja á sér og liggja lengur í höfn en venjulega eftir löndun.
Bergey VE landaði fullfermi í Grindavík á föstudag eftir veiðar á Selvogsbankahaus. „Við vorum að veiðum á Selvogsbankahaus í blíðuveðri og það var sannkölluð afbragðsveiði. Þarna fékkst langmest af ýsu en síðan var dálítið af þorski og ufsa með í aflanum. Veiðin var jöfn og fengust yfirleitt um 10 tonn í holi. Það eru mörg skip í ýsunni á þessum slóðum,“ segir Jón Valgeirsson skipstjóri.
Vestmannaey VE landaði einnig fullfermi í Grindavík á laugardag eftir stuttan túr. „Þessi túr var stuttur. Við vorum um einn og hálfan sólarhring að veiðum. Það var byrjað á Selvogsbanka og þar fékkst blandaður afli en síðan færðum við okkur á Tána til þess að ná í ýsu. Það var sannkölluð mokveiði og satt að segja vekur ýsugengdin mikla athygli. Það virðist vera mjög gott ástand á ýsunni og hana er að finna í miklu magni á stóru svæði,“ segir Birgir Þór Sverrisson skipstjóri.
Bergey hélt aftur til veiða í gærkvöldi og verður nú lögð áhersla á karfaveiði, en Vestmannaey er væntanleg á ný til veiða síðar í vikunni.


