Fylltu skipið í tveimur hollum

Kolmunnaveiðiskip Síldarvinnslunnar hafa aflað mjög vel síðustu daga í færeysku lögsögunni og eru ýmist komin til hafnar eða á landleið með fullfermi. Barði NK kom á mánudagskvöld með 2.100 tonn, Börkur NK í gær með 3.200 tonn og Beitir NK er væntanlegur í dag með 3.000 tonn.
Það sem af er ári hafa skipin veitt um 37.000 tonn af kolmunna og eftir standa um 22.000 tonn af kvóta ársins.
Þorkell Pétursson skipstjóri á Barða segir veiðina hafa gengið vel sunnan og suðvestan við Færeyjabankann. „Það gekk vel að veiða og þarna er mikið af fiski á ferðinni. Við fengum aflann í sex holum og það var dregið í 4 – 12 tíma. Veiðiskipin eru dreifð þannig að það er fiskur á stóru svæði. Menn hljóta að vera mjög ánægðir með kolmunnaveiðina að undanförnu og það bendir flest til þess að kolmunnastofninn sé í góðu ástandi,“ segir Þorkell.
Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki tekur í sama streng og segir veiðina hafa verið óvenju góða. „Við fylltum skipið í fimm holum á tveimur og hálfum sólarhring. Það var dregið í 5 – 10 tíma og aflinn í holi var frá 450 tonnum og upp í tæplega 900 tonn. Ég man ekki eftir því að við höfum fyllt skipið áður í einungis fimm holum. Það er mikill fiskur á stóru svæði og það er enn að ganga fiskur að sunnan inn í færeyska lögsögu. Þetta bendir til þess að kolmunnastofninn sé býsna sterkur og það sé útlit fyrir góðar vertíðir í framtíðinni,“ segir Hjörvar.
Ólafur Gunnar Guðnason skipstjóri á Beiti segir veiðiferðina hafa verið sérstaklega ánægjulega. „Við stoppuðum einungis í tvo sólarhringa og sjö klukkustundir á miðunum. Tekin voru sex stutt hol og einungis dregið í 3 – 6 tíma. Aflinn var frá 300 og upp í 650 tonn í holi. Við vorum tiltölulega norðarlega og þurftum þess vegna að vera með bolfiskskilju á trollinu. Á þeim slóðum sem við vorum að veiða voru mest færeysk skip. Það var blíðuveður allan tímann og það var skemmtileg tilbreyting frá því sem verið hefur. Þetta var sannkölluð aðgæsluveiði og ég hef aldrei upplifað aðra eins veiði. Eðlilega eru menn virkilega kátir hér um borð eins og menn eru alltaf þegar vel fiskast,“ segir Ólafur Gunnar.

